| Ég heiti Egill Þór Magnússon. Ég er giftur og á tvær dætur. Ég er vélvirki og starfa sem kennari í dag. Ég kynntist plástrunum fyrir tilviljun. Ég fór á kynningu og sá með eigin augum hvernig verkir sem höfðu verið að hrjá ungan dreng hurfu nær alveg á 15 mínútum. Ég ákvað strax að kynna mér plástrana og hef prófað þá á dætrum mínum þar sem ég sá að þeir virkuðu bæði á bakverk og stíflu í nefi. Ég er sjálfur að nota þá og finn strax breytingu á einni viku. Ég spila badminton og stefni á að ná árangri í þeirri íþrótt, hef m.a. náð að spila til úrslita í mótum. Ég er þess fullviss að plástrarnir eiga eftir að hjálpa mér. Mjög margir íþróttamenn nota þá. Ég ætla að nota þá í badmintonmótum og stefni á að spila til úrslita á Íslandsmóti 50+ sem ég og gerði . Til þess að ég viti betur sjálfur hvernig þeir virka pantaði ég gullpakkann og get þannig prófað allar tegundir. Það sem hefur komið skemmtilega á óvart er Silent Night plásturinn því ég sef mun betur og dýpra, var alltaf að vakna og snúa mér. Einnig hefur orka og liðleiki aukist. Ég hef lesið mér til um plástrana og bíð spenntur eftir því að geta sagt öðrum frá þeim því ég er viss um að þeir eiga eftir að hjálpa mörgum. Það sem mér finnst vera aðalplúsinn við plástrana er að þeir eru þægilegir í notkun, virka mjög fljótt og engin efni eru sett í líkamann. LifeWave fyrirtækið vinnur mjög faglega að framleiðslunni, og liggja miklar rannsóknir að baki við þróun vörunnar. Það gerir hana afar vandaða sem markaðsvöru. Viðskiptat |